Keflavík hefur endurheimt hinn unga og efnilega leikmann Ásdísi Lilju Guðjónsdóttur, en hún er mætt aftur heim í sitt uppeldisfélag. Ásdís Lilja hélt til Tenerife árið 2023 og hefur síðastliðin þrjú ár æft og spilað með C.B. Santa Cruz á Spáni.
Ásdís Lilja, sem á að baki leiki með yngri landsliðum Íslands, styrkir leikmannahóp Keflavíkur fyrir átökin sem fram undan eru. Hjá félaginu ríkir mikil ánægja með að fá hana aftur í sína raðir og mikil tilhlökkun er að sjá hana leika á ný í Blue höllinni í vetur.



