Með sigrinum í kvöld er Snæfell búið að tryggja sig inn í úrslitakeppnina og þar með nældu þær sér í tvö mikilvæg stig í Toyotahöllinni í kvöld. Einnig náðu þær að stöðva sigurgöngu Keflavíkur á leiktíðinni en fyrir leikinn voru þær búnar að vinna 13 leiki í röð á heimavelli sínum. Leikurinn endaði 59-61 og þar með þarf Keflavík að bíða fram að síðasta leik til að næla sér í deildarmeistaratitilinn.
Keflavík byrjaði betur í fyrsta leikhluta og komst í 7 -0 á upphafsmínútunum. En eftir það var eins og það hafi gjörsamlega slokknað á þeim og Snæfell nýtti sér það. Smám saman komust þær inn í leikinn og þegar rúmar tvær mínútur voru eftir af leikhlutanum jafnar Snæfell 7-7 og komast svo yfir stuttu seinna 9-10. Leikhluturinn endar síðan 11-12 og einkenndist hann af slæmri nýtingu og nýtingum. Hjá Keflavík var Pálína Gunnlaugsdóttir með 5 stig og hjá Snæfell var Hildur Sigurðardóttir með 6 stig.
Annar leikhlutinn var mjög kaflaskiptur þar sem liðin skiptust á að vera í forystunni. Eins og í fyrsta leikhluta byrjaði Keflavík betur og virtust vera vaknaðar. En Snæfell hleypti þeim aldrei of langt frá sér og voru komnar aftur yfir um miðjan leikhlutann, 16-18. Næstu mínútur eftir það var mjög lítið að gerast hjá báðum liðunum og virtist vera einhver skjálfti í liðunum. Liðin voru síðan jöfn á öllum tölum það sem lifði af leikhlutanum og var staðan 27-27 þegar flautað var til hálfleiks. Hjá Keflavík var Pálína sterk á báðum endum vallarins og var komin með 14 stig. Hildur Sigurðardóttir var komin með 8 stig fyrir Snæfell og þær Kieraah Marlow og Jordan Murphree með 6 stig hvor.
Leikurinn hélt áfram eins og hann endaði fyrir hálfleik og skiptust liðin á því að vera með forystuna á upphafsmínútum þriðja leikhlutans. Bæði liðin voru frekar mistæk sóknarlega og var ekkert að detta ofaní framan af í leikhlutanum. Snæfell tók sig þá til og herti vörn sína og fór að setja skotin sín niður og komst í 36-42 þegar tvær mínútur voru eftir af leikhlutanum. Keflavík átti síðan 4 síðustu stig leikhlutans og var staðan 40-42 fyrir síðasta leikhlutann. Pálína var komin með 21 stig fyrir Keflavík og var algjörlega að halda þeim inn í leiknum sóknarlega. Hjá Snæfell var Hildur Sigurðardóttir komin með 14 stig.
Eins og hina þrjá leikhlutana þá byrjar Keflavík betur en Snæfell er þó ekkert að hleypa þeim of langt undan. Um miðjan leikhlutann kemst Keflavík í 53-49 og þessum tíma var ekkert að detta ofaní hjá Snæfell. En þær gáfust ekki upp og jöfnuðu leikinn þegar rétt undir fjórar mínútur voru eftir af leiknum. Eboni Mangum fær sína fimmtu villu stuttu seinna og Snæfell kemst yfir með því að setja niður tvö víti, 53-55. Snæfell herðir vörnina sína og með góðri baráttu komast í 55-59 þegar rúm mínúta var eftir af leiknum. Keflavík jafnar síðan í 59-59 áður en Hildur Sigurðardóttir setur síðasta skot leiksins ofaní körfuna þegar 46 sekúndur voru eftir, 59-61. Keflavík átti þó síðasta skotið sem hefði getað stolið sigrinum en ofaní vildi boltinn ekki. Snæfell fagnaði því sínum þriðja sigri á Keflavík í vetur í fjórum viðureignum.
Hjá Keflavík var Pálína sú eina sem var að draga vagninn sóknarlega og þarf greinilega á fleirum að skila meira inn en gert var í kvöld. Hún endaði leikinn með 29 stig, 10 fráköst, 3 stoðsendingar og 3 stolna bolta. Næst henni var Mangum með 10 stig, 7 fráköst og 4 stoðsendingar. Jaleesa Butler hefur oft spilað betur en hún var með 8 stig, 15 fráköst og 6 varin skot.
Hjá Snæfell var Hildur Sigurðardóttir að spila mjög vel og endaði leikinn með 16 stig, 10 fráköst og 4 stoðsendingar, Næst henni var Murphree með 12 stig, 13 fráköst, 4 stolna bolta og 2 stoðsendingar. Hildur Björg Kjartansdóttir var síðan með 11 stig og 8 fráköst.
Texti: [email protected]
Mynd: [email protected]



