Formenn, þjálfarar og fyrirliðar Dominos deildar kvenna spá Snæfell fjórða íslandsmeistaratitlinum í röð í deildinni en spá vetrarins var kynnt nú í hádeginu.
Nýliðum Skallagríms er spáð öðru sæti og því líklegt að vesturlandið muni berjast um efstu tvo sætin.
Njarðvík er spáð falli en Haukar sem voru deildarmeistarar á síðasta tímabili er spá næst neðsta sæti en liðið hefur orðið fyrir miklum skakkaföllum.
Spánna í heild sinni má sjá hér að neðan:
1. Snæfell 186 stig
2.Skallagrímur 141 stig
3. Grindavík 133 stig
4. Stjarnan 118 stig
5. Valur 105 stig
6. Keflavík 100 stig
7. Haukar 46 stig
8. Njarðvík 37 stig