Leikur gærkvöldsins var þýðingarmikill fyrir bæði liðin, Fjölnir er á botninum og vilja rífa sig upp þaðan og Snæfell er að klóra í KR með úrslitakeppnina sem nú skartar einungis fjórum efstu liðunum og því mikilvægt verkefni fyrir Snæfellstúlkur ef þær ætla sér að taka þátt í henni.
Leikurinn var Fjölnismegin til að byrja með, þær voru mun einbeittari fyrstu 5 mínúturnar og komust í smá forskot sem Inga þjálfara Snæfells leist illa á og tók leikhlé til að fara yfir málin og við það réttist úr kútnum hjá þeim og þær vinna leikhlutann með einu stigi 21-22.
Jafnt var með liðum allan leikinn og var þetta ósvikin skemmtun fyrir þá sem mættu í Grafarvogin í gærkvöld. Leikurinn spilaðist jafnt og var forskot liðanna til skiptis og aldrei meira en 5 stig.
Þegar það eru um 40 sekúndur eftir og Fjölnir er yfir 79-74 fær Kieraah boltann og keyrir upp völlinn og reynir skot sem er brotið á og fer ofaní, hún setur vítið niður og kemur í 79-77.
Loka sekúndur voru rafmagnaðar og þegar 5 sek. eru eftir og staðan 79-79 er brotið á Jessicu Bradley og hún fær 2 víti sem hún setur ofaní, Ingi tekur leikhlé og þær taka langt innkast sem Kieraah fær boltan úr og reynir skot sem klikkar en Jordan var mætt í frákast og fór strax upp í skot þegar 0,3sek eru eftir og er brotið á henni og jafnar hún leikinn á línunni 81-81 og var framlengt úr því. Snæfell byrjaði betur í framlengingunni og enduðu með 2 stiga sigri í mögnuðum leik.
Katina Mandylaris hennti sér í búning þrátt fyrir mikil veikindi síðustu 2 vikur og er enn að jafna sig á þeim og ekki var vitað með þol hennar í leiknum en hún smellti í tröllatvennu 28 stig og 20 fáköst! Mikilvægt fyrir Fjölni að fá hana til baka fyrir restina af tímabilinu. Fjölnir skartaði líka nýjum leikmanni sem heitir Jessica Bradley og er miðherji, hún kom til landsins í gær og á eftir að slípa sig saman með liðinu og skilaði hún 13 stigum og 14 fráköstum í fyrsta leik, Britney Jones var í sínu meðtaltali eða um 38 stig sem hún setti á töfluna ásamt 9 stoðs.
Hjá Snæfell var Kieraah Marlow mjög góð með 32 stig og 11 frák, Hildur Sigurðar var ekki sér lík í þessum leik og skoraði 3 stig, öll af vítalínunni. Alda Leif hélt Snæfelli inn í leiknum með stórum körfum sem og Jordan en hún var langt frá sinni getu miðað við síðasta leik með liðinu.
Ljóst er að Fjölnisliðið er ekki búið að segja sitt síðasta í deildinni í vetur og gera harða atlögu á að koma sér úr fallsæti og halda sér uppi.
Umfjöllun og viðtal/ Karl West



