Grindavíkurstúlkur mættu í Stykkishólm í slag gegn Snæfelli en þær eru að berjast um að vera ekki neðstar um áramót og hífa sig upp í deildinni. Snæfell hinsvegar verið að hiksta lítillega en eru í toppbaráttunni og sem stendur í öðru sæti.
Gangur leiksins
Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en í fyrsta fjórðung var staðan 12-14 fyrir Grindavík þegar Snæfell hertu vörnina og Gunnhildur Gunnars setti niður tvo þrista því til verðlauna. Staðan eftir -fyrtsa hluta 23-19 heimastúlkum í vil. Í hálfleik var staðan 37-38 fyrir gestina en þær höfðu mikið erindi í þennan leik og áttu inni sterka vörn og stoppuðu Snæfell og náðu að færa sér það í nyt.
Sveiflur voru á milli liðanna í seinni hálfleik og sem var að hlaupa frá 1 stigs forystu Snæfells í 10 stig en liðin skiptust á áhlaupum og á tíma duttu þristarnir eins konfektmolar í munn um jólin. Staðan eftir þriðja fjórðung var 60-55. Það var svo hörku fjórði leikhluti þar sem staðan var 69-69 þegar 1:0 voru eftir en Snæfell sigraði 75-72.
Af hverju vann sá sem vann?
Af því að þegar staðan var 69-69 og 1:30 eftir setur Gunnhildur Gunnarsdóttir niður þrist og eftir leikhlé taka Grindavík boltann inn en Aaryn stelur honum og fer í sniðskot og þar með er staðan orðin 74-69 og 28 sekúndur eftir sem Grindavík gátu ekki nýtt sem skildi og lokatölur 75-72. Heilt yfir var leikurinn það jafn að það var þessi lokamínúta sem skar úr um þetta.
Hetjan
Gunnhildur Gunnarsdóttir körfuknattleikskona ársins 2016 endaði með 14 stig. Af hverju? Af því ég segi það J Gunnhildur var að berjast vel og gaf allt í leikinn þó ekki hafi hún skorað mest en hún er að hamast við að leiða liðið og er einkar flink í því. Aaryn Ellenberg var hins vegar að gera mjög góða hluti og ekki hægt að skauta fram hjá henni í hetjubitanum með 35 stig, 10 fráköst og 6 stolna bolta.
Tölurnar
Liðin voru að frákasta vel í fyrri hálfleik Snæ 27, Gri 24 en mikið jafnræði var með liðunum framan af í jöfnum leik. Fráköstin enduðu 48/46. Snæfell hafði yfir í stolnum boltum 11/4 en í vítum voru Grindavík með 13/16 81% en Snæfell sem hafa verið að standa sig vel á línunni en settu einungis 5/14 35% í dag. Að öðru leyti nokkuð svipað farið í tölfræði liðanna. Á eftir „hetjunum“ kom Bryndis Guðmunds með góðan leik, 12 stig, 3 fráköst, 3 stolna. Hjá Grindavík var Ashley Grimes með 24 stig og 10 frák. María Ben 21 stig og 7 frák.
Myndasafn
Umfjöllun / Símon B Hjaltalín
Myndir / Sumarliði Ásgeirsson




