HomeFréttirSmjattpattar í úrvalsdeild

Smjattpattar í úrvalsdeild

Í gær voru veitt verðlaun fyrir síðari hluta Iceland Express deildar karla. J´Nathan Bullock var þar valinn besti leikmaðurinn og úrvalsliðið kunngjört um leið. En þegar glöggt er rýnt í meðfylgjandi mynd kemur í ljós að það virðast eingöngu vera smjattpattar sem skipa úrvalsdeildina.
Þannig var nú í gær að Finnur Atli Magnússon var valinn í úrvalsliðið en átti ekki kost á því að veita viðurkenningunni móttöku. Hann fékk því karl faðir sinn, hann Magnús, til að mæta fyrir sína hönd og sá gamli kom flestum á myndinni undir handarkrikann á sér. Það verður að teljast hjákátlegt að á hópmynd í körfubolta sé hæsti maðurinn á mynd ekki leikmaður. Smjattpattar í úrvalsdeild.
 
Fréttir
- Auglýsing -