Laugardalshöllin hýsti í kvöld áhugaverða viðureign í fyrstu umferð neðri hluta Bónus deildar kvenna þegar nýliðar Ármanns tóku á móti Keflavík.
Leikurinn var mikilvægur fyrir bæði lið en sitt hvorum megin í töflunni í þessum hluta deildarinnar. Ármenningar sýndu mikla einbeitingu frá fyrstu mínútu og leiddu leikinn frá upphafi til enda. Að lokum fór svo að heimakonur tryggðu sér dýrmætan sigur, 84–75, í baráttu sinni fyrir því að festa sig í sessi í deildinni.
Karfan spjallaði við Sylvíu Rún Hálfdánardóttur leikmann Ármanns eftir leik í Laugardalshöll.



