HomeFréttirSlúður og molar úr NBA

Slúður og molar úr NBA

23:46:31

 -Miðherjinn Andrew Bogut hjá Milwaukee verður frá keppni vegna bakmeiðsla næstu 2 mánuði. Þetta er mikið reiðarslag fyrir Bucks sem voru að vonast til þess að Bogut, sem hafði misst af 13 af síðustu 18 leikjum liðsins, væri að koma til. Bogut hittir stjörnuleikmanninn Michael Redd fyrir á meiðslalistanum, en Redd kemur ekki meira við sögu á tímabilinu. Bucks eru í 8. sæti Austurdeildarinnar í æstum slag um úrslitasæti og er hætt við að þetta setji allar slíkar vonir í hættu.

Fleiri fréttir hér að neðan…

-Framherjinn Gerald Wallace hjá Charlotte Bobcats verður frá keppni í óákveðinn tíma eftir að hafa slasast í leik gegn Lakers fyrir skemmstu. Hann fékk sprungu í rifbein auk þess sem annað lunga hans féll saman að hluta til, og verður alla vegna frá í tvær vikur, sennilega lengur. Wallace var á sjúkrahúsi í LA í nokkra daga, en lagði af stað heim til Charlotte í gær og er væntanlegur í kvöld eða snemma á morgun. Já, hann má ekki fljúga vegna ástands síns, en fer þess í stað þessa 3600 km leið í rútu. Kaldhæðni örlaganna er að sá sem olli meiðslunum með harkalegum varnartilburðum var Andrew Bynum, miðherjinn knái sem meiddist í næsta leik á eftir og verður frá í alla vegana 2 mánuði.

-Stórstjarnan Chris Paul hjá New Orleans Hornets virðist ætla að sleppa vel með meiðslin sem hann varð fyrir í leik gegn Portland á dögunum, en rannsóknir hafa sýnt að hann er með minniháttar tognun í nára og gæti jafnvel komið við sögu í leiknum gegn Chicago í kvöld.

Það eru góðar frétti fyrir Hornets sem hrundu saman eftir að Paul fór út af gegn Portland.

-Jason Kapono, stórskyttan í liði Toronto Raptors, getur orðið þriðji leikmaðurinn til að vinna 3ja stiga skotkeppnina þrjú ár í röð þegar hann stígur út á gólfið á laugardagskvöld, daginn fyrir stjörnuleikinn. Kapono varði titil sinn í fyrra og getur nú fylgt í fótspor Larry Bird (86-88) og Craig Hodges (90-92) sigri hann um helgina. Hann mætir nokkrum ansi skotvissum köppum í keppninni, en Rashard Lewis, Danny Granger, Mike Bibby, Roger Mason og Dequan Cook munu etja við hann kappi.

-Jamaal Tinsley, leikstjórnandi hjá Indiana Pacers, hefur beint þeim tilmælum til leikmannasamtaka NBA að samtökin höfði mál á hendur Pacers fyrir hans hönd, en Tinsley hefur verið tekinn út úr hópnum hjá liðinu og tjáð að þjónustu hans yrði ekki óskað framvegis. Síðan hann fékk eigur sínar sendar heim til sín í sumar með þessum skilaboðum hefur hann reynt að halda sér í formi, en þó Tinsley hafi verið ágætis leikmaður lenti hann oft í klandri, m.a. komst hann í kast við lögin þannig að forráðamenn Indiana tóku þá ákvörðun að láta hann ekki skemma út frá sér í enduruppbyggingunni sem á sér stað þar um þessar mundir. Pacers þurfa engu að síður að greiða Tinsley laun út samningstímann, alls um 15 milljónir dala á tveimur árum eftir þetta tímabil, nema þeir nái að skipta honum, en þeir segja að þrátt fyrir tilraunir sínar séu ekki margir áhugasamir um að nýta sér þjónustu leikmannsins.

ÞJ

Fréttir
- Auglýsing -