HomeFréttirSlakt í Vesturbænum: Signý snýr aftur!

Slakt í Vesturbænum: Signý snýr aftur!

 
Leikur KR og Grindavíkur verður seint minnst sem góðs körfuboltaleiks en liðin mættust í Iceland Express deild kvenna í gærkvöldi. Vægast sagt slakur sóknarleikur í bland við fast leikinn varnarleik einkenndi viðureign liðanna sem lauk með 50-46 sigri heimamanna sem eru komnar með 12 stig og sitja í 3. sæti meðan Grindavíkurstúlkur eru enn á botninum ásamt Fjölni með 2 stig. 
Margrét Kara Sturludóttir var mætt aftur í byrjunarlið KR ásamt Hildi Sigurðardóttir en báðar hafa þær verið að glíma við slæm ökklameiðsli síðustu vikur. Heldur meiri athygli vakti þó að landsliðsmiðherjinn Signý Hermannsdóttir var kominn í búning og lék sinn fyrsta leik á tímabilinu. Byrjunarlið Grindavíkur var skipað þeim Aginju Reke, Berglindi Magnúsdóttur, Crystal Boyd og systrunum Helgu og Hörpu Hallgrímsdættrum. KR liðið hóf leik með Margréti Köru ásamt þeim, Þorbjörgu Friðriksdóttur, Guðrúnu Gróu Þorsteinsdóttur, Helgu Einarsdóttur og Hafrúnu Hálfdánardóttur.
 
KR liðið hóf leikinn af krafti og komst í 6-0 áður en Crystal skoraði fyrstu körfu Grindavíkurliðsins þegar tæpar þrjár og hálf mínútna voru liðinar af leiknum. Jafnræði var með liðunum en sóknarleikur liðanna var ekki uppá marga fiska. Agnija Reke var þó að leika hvað best en hún ásamt Helgu Hallgrímsdóttur fóru fyrir Grindavíkur liðinu í fyrri hálfleik. Í stöðunni 9-8 kom Signý inná í fyrsta skipti í vetur og var ekki lengi að stimpla sig inn. Eftir vel útfært hraðupphlaup skoraði hún sín fyrstu stig í sinni fyrstu snertingu og lauk svo leikhlutanum með fallegri "buzzer" þriggja stiga körfu. Staðan 15-10 fyrir heimastúlkur eftir leikhlutanum.
 
Grindavíkur stúlkur unnu sig jafnt og þétt inn í leikinn í öðrum leikhluta og náðu með góðu 6-0 áhlaupi að jafna leikinn í 22-22 þegar tæpar 2 mínútur voru til hálfleiks með körfu eftir frábæra sókn sem Helga batt endahnútinn á. Þorbjörg Andrea svaraði hins vegar með þrist sem batt enda á tæplega 4 mínútna skorlausan kafla hjá KR liðinu. KR liðið leiddi svo naumlega 27-24 í hálfleik. Helga Hallgrímsdóttir var kominn með 10 stig þegar hér er komið við sögu en Agnija var með 8 stig, 6 fráköst og 4 stolna. Hjá KR liðinu var Kara stigahæst með 8 stig en góð nýting fyrir utan þriggja stiga línuna, 4 af 8, var eitt af fáu jákvæða sem liðið gat tekið úr fyrri hálfleiknum.
 
Hildur Sigurðardóttir byrjaði seinni hálfleikinn af krafti með tveimur góðum körfum og sem virtist að KR liðið ætlaði að rífa sig uppúr meðalmennskunni. Svo fór þó ekki því KR liðið skoraði einungis tvær körfur utan af velli næstu 15 mínútur. Grindavíkur liðið svaraði körfunum hennar Hildar og minnkaði muninn í 31-30 en KR liðið hélt forystunni 36-32 eftir þriðja leikhluta sem lauk 9-8 fyrir KR.
 
Fátt markvert gerðist á fyrstu mínútum fjórða leikhluta frekar en í þeim þriðja þar til Agnija setti góðan þrist úr horninu og minnkaði muninn niður í eitt stig þegar rúmar 6 mínútur voru eftir. Þá virtist allt í einu Grindavíkurstúlkur átta sig á að þær ættu möguleika á að vinna leikinn og aukinn stemming færðist í herbúðir þeirra.
 
Crystal, sem hafði verið hálf meðvitundarlaus allan leikinn, vaknaði til lífsins og skoraði körfu eftir gott gegnumbrot mínútu síðar og einn mínútu síðar bætti Lilja Sigmarsdóttir við körfu eftir mikla baráttu undir körfunni og Grindavíkurliðið komið með 40-37 forskot þegar þrjár og hálf míntuta voru eftir. KR liðið var í tómu tjóni í sókninni á þessum tímapunkti en duttu í lukkupottinn þegar Berglind braut klauflega á Köru og KR liðið komið í bónus. Kara braut þar með ísinn fyrir KR stúllkur með vítunum tveimur og strax í næstu sókn kom Helga Einarsdóttir KR liðinu yfir á ný með góðri körfu og víti að auki. Staðan 42-40 fyrir KR og tvær mínútur eftir. Signý bætti við einu víti en hún lokaði teignum hjá KR liðinu á þessu tímabili einsog henni er einni lagið og Kara setti stóran þrist af kantinum sem var endapunkturinn á flottu 9-0 áhlaupi hjá KR liðinu og héldu flestir að björninn væri unninn fyrir Íslandsmeistarana, staðan 46-40.
 
Crystal var ekki á sama máli og svaraði með þrist þegar um 40 sekúndur voru eftir, staðan 46-43. Upp hófst taktískur darraðardans þar sem þjálfaranir skiptust á að senda hitt liðið á vítalínuna og taka leikhlé til skiptis en KR liðið hélt vel á spilunum og kláraði leikinn með því að setja vítin sín niður meðan Grindavíkurliðið brenndi af 3 af 4 sínum. Lokatölur urðu 50-46 í leik sem seint verður í minnum hafður.
 
Grindavíkur liðið má vel við una enda að spila á útivelli gegn sterku KR liði. Liðið var síst slakari aðilinn í leiknum og hefði með smá heppni undir lokinn hæglega getað farið heim suður með sjó með tvö stig í farteskinu. Agnija Reke var best í liði Grindavíkur en hún mætti gera enn meira í sóknarleik liðsins en hún endaði með 14 stig, 12 fráköst og 5 stolna en hún var eini leikmaðurinn á vellinum sem var með 50% skotnýtingu. Helga Hallgrímsdóttir náði ekki að fylgja eftir góðum fyrri hálfleik í sóknni en var traust varnarlega og þær Harpa systir hennar, Berglind og hin unga Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir börðust einsog ljón allan leikinn. Bandaríski leikmaður liðsins, Crystal Boyd, var eins og áður sagði hálf meðvitundarlaus allan leikinn en hún virtist ekki hafa trú á verkefninu fyrr en rétt undir lokin.
 
Endurkomu Signýjar hefur verið beðið með ofvæni í vetur en hún styrkir KR liðið mikið í teignum með reynslu sinni og varnarhæfileikum og var hún mikilvæg í 9-0 kafla liðsins undir lok leiksins. Fáar í KR liðinu áttu annars góðan dag en stuttir sprettir þar sem leikmenn sýndu hæfileikanna voru nóg að þessu sinni til að klára leikinn. Góð þriggja stiga hittni Köru var einn af fáum jákvæðum punktum úr leiknum en hún nýtti 3 af 5 skotum sínum fyrir utan línuna og var stigahæst með 16 stig. Hún bætti við 7 stolnum boltum en þeir hverfa hratt þegar 8 tapaðir boltar bætast við. Hildur var langt frá sínu besta og ljóst að ökkla meiðslin eru enn að plaga hana. Helga Einarsdóttir og Hafrún sem lenti í villuvandræðum í fyrri háfleik komust lítið í takt við leikinn frekar en Guðrún Gróa. KR-ingar mega þó vera ánægðir með að klára leikinn enda hver stig mikilvæg í baráttunni um sæti í A-riðlinum þegar deildinni verður skipt upp í janúar en ljóst er að liðið þarf að leika miklu mun betur ef það ætlar sér í úrslitaviðureignina í vor, fjórða árið í röð.
 
Stigaskor KR: Margrét Kara 16 (7 stolnir, 8 tapaðir), Signý (7 fráköst, 3 varin), Gróa 6 (6 fráköst), Helga 6, Hildur 6, Hafrún 5 (8 fráköst), Þorbjörg 3.
 
Stigaskor Grindavíkur: Agnija 14 (12 fráköst, 5 stolnir), Helga 13 (6 fráköst), Crystal 11 (10 fráköst, 6 stolnir, 8 tapaðir), Harpa 2 (8 fráköst), Berglind 2, Ingibjörg 2 og Lilja 2.
 
Ljósmynd/ Úr safni: ,,She´s back” – Signý er komin í röndótt á nýjan leik!
 
Umfjöllun: FFS
Fréttir
- Auglýsing -