spot_img
HomeFréttirSkráning hafin í þjálfaraskóla Brynjars Karls

Skráning hafin í þjálfaraskóla Brynjars Karls

 

Skráning er hafin í þjálfaraskóla Brynjars Karls fyrir konur, en í honum verður áhersla lögð á praktískar hliðar þjálfunar. Skólinn mun standa yfir allt næsta tímabil eða frá 22. ágúst til 1. maí næstkomandi. Markmið skólans er að fjölga kvenþjálfurum á Íslandi.

 

Skólinn fékk á dögunum styrk úr Jafnréttissjóði Íslands.

 

 

 

 

 

Hér að neðan er fréttatilkynning með öllum helstu upplýsingum:

 

Þjálfaraskóli Brynjars Karls

 

Þjálfaraskóli Brynjar Karls fyrir konur hefst 22. ágúst 2016 og lýkur 1. maí 2017.

 

Markmið skólans er að fjölga kvenþjálfurum í körfuknattleik. Áhersla verður lögð á praktískar hliðar þjálfunar. Þátttakendur munu þjálfa hæfan stúlknahóp þar sem gefst tækifæri til að spreyta sig í þjálfun í hverri viku ásamt því að bóklegir tímar verða tvisvar sinnum í mánuði.

 

Á námstímanum verður leitast við að byggja upp reynslu þátttakenda í eftirfarandi hlutum: Skipulagning og kennsla í leikfræði og tækni í körfuknattleik. Skipulagning kennslugagna þjálfarans. Uppbygging æfingabanka og leikjabókar. Tímaseðlagerð. Þjálfun grunntækni sóknar; skot, knattrak, sendingar, hreyfing án bolta og fráköst. Þjálfun grunntækni varnar; vörn á bolta, frá bolta og fráköst. Þjálfun leikfræði sóknar; frjáls sókn, leikkerfi, skipting frá vörn yfir í sókn (transition) og sóknarfráköst. Þjálfun leikfræði varnar; pressa, svæði, maður á mann vörn, skipting frá sókn yfir í vörn  (transition) og varnarfráköst. Grunnatriði styrktar-, liðleika-, hraða- og þolþjálfunar ásamt endurheimt. Viðtæk færni með þjálfarahugbúnaðinn XPS network. Leikgreining (scouting) og myndbandavinnsla. Huglægur og félagslegur undirbúningur yngri flokka. Samskipti við foreldra. Þjálfun í markmiðastjórnun fyrir þjálfara og leikmenn. Undirstöðuatriði í íþróttasálfræði og liðsuppbyggingu. 

 

Námið er bæði verklegt og bóklegt. Gert ráð fyrir 120 kennslustundum í bóklegt nám og 120 kennslustundum í verklegt nám. 

 

Innifalið í námskeiðinu er þjálfarahugbúnaðurinn XPS network og Sideline Video Analyzer. 

 

Kennari er Brynjar Karl Sigurðsson, einn fremsti körfuknattleiksþjálfari landsins og frumkvöðull á sviði gæðastjórnunar fyrir íþróttafélög og þjálfara. Hann stofnaði m.a. fyrstu íþróttaakademíuna í menntaskóla á Íslandi (FSu) ásamt því að hafa stofnað Sideline Sports sem er opinber hugbúnaður FIBA og Key Habits sem er leiðandi fyrirtæki á Íslandi á sviði markmiðastjórnunar og hugarþjálfunar.  Brynjar Karl sá um allt fræðsluefni fyrir heimasíðu FIBA og sér um leikgreiningu á stórmótum fyrir FIBA. Hann hefur unnið sem ráðgjafi fyrir atvinnumannalið erlendis í deildum eins og NBA, NFL og ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

 

Kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 4. ágúst kl. 19:00 í húsnæði Key Habits, Skeifunni 19 þar sem farið verður betur yfir skipulag skólans. 

 

Þær sem hafa áhuga á að mæta á kynningarfundinn eða vilja nánari upplýsingar er bent á að hafa samband við Bryndísi Gunnlaugsdóttur í síma 898-5373 eða á netfangið [email protected].

Fréttir
- Auglýsing -