HomeFréttirSkráning hafin í Gatorade búðirnar 8.-11. júní

Skráning hafin í Gatorade búðirnar 8.-11. júní

Körfuboltabúðir Gatorade verða haldnar í tuttugasta og fimmta sinn dagana 8. til 11. júní 2026 í N1-höll Vals á Hlíðarenda. Um er að ræða elstu körfuboltabúðir á Íslandi, en þær hafa verið starfræktar allt frá árinu 2001. Búðirnar eru ætlaðar áhugasömum strákum og stelpum á aldrinum 11 til 18 ára sem vilja bæta tækni sína og leik. Yfirþjálfari búðanna er Ágúst S. Björgvinsson og munu þátttakendur njóta handleiðslu reyndra þjálfara á æfingum sem fara fram á hverjum degi milli klukkan 17:00 og 20:30.

Þátttökugjald í búðirnar er 17.000 krónur og innifalið í því er nóg af Gatorade til að svala þorstanum, ásamt bol og fleiri varningi. Skipuleggjendur vekja athygli á því að færri hafa komist að en viljað á undanförnum árum og því er mikilvægt að fólk skrái sig tímanlega til að tryggja sér pláss. Skráning fer fram á Facebook-síðunni „körfuboltabúðir“ en einnig er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected].

Hérna er hægt að skrá sig

Fréttir
- Auglýsing -