Hið árlega Pollamót Þórs í körfubolta verður haldið 24. október næstkomandi í Íþróttahöllinni á Akureyri – takið daginn. Síðasta mót gekk afskaplega vel en 15 lið tóku þátt, bæði karla og kvennalið. Mótshaldarar gera ráð fyrir sama uppleggi á mótinu og í fyrra. Keppt verður á laugardeginum og svo lýkur deginum með kvöldskemmtun. Nánari dagskrá verður kynnt síðar.
Skráning fer fram á: [email protected]
Facebook síða Pollamóts Þórs í körfuknattleik





