HomeFréttirSkotbúðir í Dymbilvikunni

Skotbúðir í Dymbilvikunni

Áttfaldi íslandsmeistarinn og landsmaðurinn fyrrverandi Brynjar Þór Björnsson verður eins og síðastliðin ár með skotbúðir í Dymbilvikunni. 

Búðinar verða haldnar á heimavelli íslenska landsliðsins og Ármanns,  Laugardalshöllinni . Skotbúðirnar hafa verið vel sóttar  og alltaf verið mikið fjör. Í ár verða þær tvískiptar. 1. – 6. bekkur verður saman og svo 7. – 10. Bekkur.

Síðastliðin ár hafa Logi Gunnarsson, Kári Jónsson og Kristinn Pálsson mætt og í ár verður engin breyting á. 

Besti leikmaður Íslandsmótsins 2025, landsliðfyrirliðinn og Íslandsmeistarinn Ægir Þór Steinarsson  ætlar að koma og ræða við eldri hópinn um það hvernig hann hefur nýtt aukaæfingarnar til að verða enn betri leikmaður. 

Allir þátttakendur fá gjafabréf frá Yuzu, ávextir verða í hléunum og þá fá allir þátttakendur boli.

Auk þess verða að sjálfsögðu veglegir vinningar í hinum ýmsu keppnum og leikjum.

Hér fyrir ofan er ein mynd af hópnum sem mætti í fyrra. Þá var frábær stemming í Skotbúðunum og vel tekið á því. Skráning fer fram í gegnum tölvupóst á [email protected], en allar frekari upplýsingar er að finna hér fyrir neðan eða á Facebook síðu Körfuboltaþjálfunar Brynjars.

Fréttir
- Auglýsing -