Kempuhlaðið lið Njarðvík b er dottið út úr Poweradebikarnum og fékk þar að bragða á ósigri í fyrsta sinn í vetur. Það þurfti topplið Domino´s-deildar karla til að lækka rostann í Njarðvík b sem hefur gert það víðreist í 2. deild karla þessa vertíðina með hverja öldnu kempuna innanborðs á fætur annarri. Vissulega eru yngri menn í bland en þetta b-lið þeirra Njarðvíkinga hefur verið illt viðureignar og afrekaði það í 8-liða úrslitum gegn Keflavík að skora jafn mikið gegn erkifjendunum og aðallið þeirra Njarðvíkinga.
Fyrri viðureign Njarðvíkur og Keflavíkur í deildinni fór 84-94 í Ljónagryfjunni. Aðallið þeirra Njarðvíkinga afrekaði þó að halda Keflavík í lægra stigaskori en b-liðið gerði í gær eða í 94 stigum en Keflvíkingar settu 108 stig á b-liðið í gær.
Öllu á botninn hvolft, þó Sigurður Ingimundarson hafi nú vísast ekki verið með sína menn á neinni gandreið í gær, þá hjó b-lið Njarðvíkur nærri því meðaltali stiga sem Keflavík fær á sig í leikjum í Domino´s-deildinni. Keflavík fær 90,1 stig á sig að meðaltali í leik og því nokkuð vel að verki staðið að koma 84 stigum yfir toppliðið.
Stigaskor liða í Domino´s-deild karla gegn Keflavík:
Þór – skoraði 83 í tapi
Stjarnan – skoraði 85 í tapi
ÍR – skoraði 87 í tapi
FSu – skoraði 110 í sigri
Tindastóll – skoraði 97 í sigri
KR – skoraði 81 í tapi
Grindavík – skoraði 94 í tapi
Snæfell – skoraði 87 í tapi
Höttur – skoraði 69 í tapi
Njarðvík – skoraði 84 í tapi
Haukar – skoruðu 104 í tapi
Þór Þorlákshöfn – skoraði 101 í tapi
Keflavík fær að jafnaði á sig 90,1 stig að meðaltali í leik í Domino´s-deild karla.
Mynd/ SBS: Brenton enn silkimjúkur