spot_img
HomeFréttirSkoraði 52 stig í drengjaflokki

Skoraði 52 stig í drengjaflokki

Hilmir Hallgrímsson, leikmaður Vestra og U-16 landsliðsins, gerði sér lítið fyrir og skoraði 52 stig á móti KR-b í leik liðanna í drengjaflokki í DHL-höllinni á laugardaginn.

Vestri hafði frumkvæðið í leiknum frá byrjun og leiddu í hálfleik 49-50 en leikurinn endaði 89-108 Vestra í vil.

Hilmir spilar einnig með meistaraflokki Vestra í 1. deildinni þrátt fyrir ungan aldur en þar er hann með 4,3 stig á um 16 mínútum að meðaltali í 21 leik.

Mynd: Anna Ingimars

Fréttir
- Auglýsing -