Elías Bjarki Pálsson hefur skrifað undir samning við University of Detroit Mercy háskólann í Bandaríkjunum.
Elías Bjarki lék áður með Augusta University í NCAA D2 deildinni þar sem hann stóð sig frábærlega. Góð frammistaða hans þar skilaði honum þessu flotta tækifæri á að færa sig upp í efstu deild háskólaboltans (NCAA D1), en Detroit Mercy Titans keppa í Horizon League deildinni.





