Rebekka Rut Hjálmarsdóttir mun söðla um fyrir næsta vetur og ganga til liðs við bandaríska háskólann St. Joseph’s College í Brooklyn. Frá þessu var greint á samfélagsmiðlum íþróttaumboðsskrifstofunnar ANSAathletics á dögunum.
Rebekka mun þar með leika með körfuboltaliði skólans, sem ber heitið Bears. ANSAathletics lýsa yfir mikilli ánægju með skiptin og fagna þessu nýja skrefi á ferli leikmannsins.



