Lið: Stjarnan
Íslandsmeistaratitlar eftir úrslitakeppni: 0
Staða eftir deildarkeppni: 4. sæti
Mótherji í undanúrslitum: Snæfell
Innbyrðisviðureignir gegn Snæfell í vetur:
Stjarnan hafði einungis betur í einum leik af fjórum á milli þessara liða í vetur í Dominos deildinni. Það var í annari umferð þann 10. desember og fór leikurinn 60-52. Hina þrjá vann Snæfell og þar af tvo þeirra með í kringum 20 stiga mun. Síðasti leikur liðanna fór fram fyrir stuttu í Stykkishólmi, Snæfell vann þar með þremur stigum í háspennuleik. Einnig mættust liðin í bikarkeppninni þar sem Snæfell vann einnig í átta liða úrslitum.
Hvað þarf Stjarnan að gera til að komast í úrslitaeinvígið?
Þetta er í fyrsta skiptið sem Stjarnan er í úrslitakeppninni í Dominos deild kvenna. Þar með er fyrsta markmiðinu náð en leikmenn mega ekki vera saddir. Það býr nokkur reynsla í liðinu þrátt fyrir allt sem gæti nýst vel. Snæfell spilar fastan og áræðin leik og má Stjarnan ekki hörfa undan heldur taka þátt í baráttunni og gefa ekkert eftir. Ungir leikmenn á borð við Jónínu Þórdísi og Viktoríu Líf þurfa að koma sterkar inná, nýta villurnar sínar og djöflast í leikmönnum Snæfells og þreyta. Umfram allt þurfa lykilleikmenn liðsins þær Ragna Margrét og Dani Rodriquez að eiga frábæra leiki.
Hvað gæti farið úrskeiðis?
Ragna Margrét hefur verið meidd uppá síðkastið og æft lítið með liðinu. Ef hún er ekki að koma inní einvígið að fullum krafti er verkefnið svo gott sem ómögulegt fyrir Stjörnuna. Aðrir leikmenn en Dani og Ragna Margrét hafa átt of marga slaka leiki og verið hræddar við að taka af skarið sóknarlega. Það má ekki vera í gangi í þessum leik og þurfa nákvæmlega allir að leggja í púkk fyrir garðbæinga.
Lykilleikmaður:
Dani Rodriquez hefur stjórnað sóknarleik liðsins í allan vetur á frábæran hátt. Hún er frábær liðsmaður og leggur sig alla fram í alla leiki. Dani þarf að vera klók sóknarlega, átta sig á veikleikum liðsins og nýta þá til fulls í einvíginu ef Stjarnan ætlar að eiga möguleika.
Fylgist með:
Hin 17 ára Jónína Þórdís Karlsdóttir hefur átt nokkrar mjög sterkar innkomur hjá Stjörnunni í vetur. Hún kemur með mikla orku á völlinn og það fer ekki framhjá neinum þegar hún er inná. Varnarlega heldur hún áfram allan tímann og gerir andstæðingnum erfitt fyrir. Jónína er með sex fráköst að meðaltali í síðustu þremur leikjum deildarinnar og gæti reynst gríðarleg mikilvæg í þessu einvígi.
Spá hlustenda:
Fyrir síðasta þátt af Podcasti Karfan.is voru hlustendur beðnir um að spá fyrir um úrslit þessa einvígis. Einungis 6% þeirra sem tóku þátt spáðu Stjörnunni sigri í einvíginu og þá í fjórum eða fimm leikjum. Hin 94% spá Snæfell sigri og þar af 68% í fjórum leikjum. Eingöngu þrjú prósent segja að leikurinn fari í oddaleik og því eingöngu 9% þátttakenda sem spá því að Stjarnan vinni meira enn einn leik.

Leikdagar í undanúrslitum:
Leikur 1 28. mars kl. 19:15 Stykkishólmi – í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
Leikur 2 1. apríl kl. 16:30 Ásgarði – í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
Leikur 3 5. apríl kl. 19:15 Stykkishólmi – í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
Leikur 4 9. apríl kl. 16:30 Ásgarði (ef þarf)
Leikur 5 13. apríl kl. 19:15 Stykkishólmi (ef þarf)
Viðtöl:




