Íslenska karlalandsliðið mátti þola tap gegn öflugu liði Serbíu, 102:73, í Belgrade Arena í kvöld í fyrsta leik seinni hluta undankeppni HM 2027.
Ísland byrjaði leikinn af miklum krafti og leiddi eftir fyrsta leikhluta, 27:25, en serbneska liðið tók frumkvæðið í öðrum leikhluta og gerði út um leikinn með miklum 32:12 spretti í fjórða leikhluta.

Stjörnuleikmaðurinn Nikola Jokic hafði frekar hægt um sig og skoraði aðeins 6 stig á rúmum 23 mínútum. Það kom þó ekki að sök fyrir heimamenn þar sem aðrir stigu upp, en stigahæstir hjá Serbíu voru Nikola Tanaskovic með 23 stig og Nikola Jovic með 21 stig. Marko Guduric skilaði einnig 17 stigum.

Hjá íslenska liðinu drógu reyndir leikmenn vagninn í sókninni. Elvar Már Friðriksson var stigahæstur með 19 stig og bætti við 5 stoðsendingum, en Martin Hermannsson átti einnig flottan leik með 18 stig úr afar góðri skotnýtingu. Tryggvi Snær Hlinason skoraði 14 stig. Jón Axel Guðmundsson fór fyrir liðinu í baráttunni undir körfunni og tók hvorki meira né minna en 10 fráköst ásamt því að gefa 4 stoðsendingar og skora 8 stig.

Staðan í hinum gríðarlega erfiða J-riðli er orðin snúin fyrir Ísland sem er nú með þrjá sigra og fjögur töp. Í riðlinum leika ásamt Íslandi og Serbíu þjóðirnar Litháen, Ítalía, Bosnía og Hersegóvína og Tyrkland, en efstu þrjú liðin tryggja sér sæti á lokamóti HM.
Íslenska liðið þarf að jafna sig fljótt á þessum úrslitum því seinni leikur þessa landsleikjaglugga er á mánudaginn. Þá fær Ísland gífurlega sterkt lið Tyrklands í heimsókn í Laugardalshöll þar sem strákarnir okkar munu freista þess að ná í dýrmætan heimasigur.




