Skallagrímur hefur samið við bandaríkjamanninn Haminn Quaintance um að spila með þeim á næsta tímabili samkvæmt heimasíðu þeirra. Haminn sem einnig gengur undir nafninu "Q" þykir afar hárprúður og verður að öllum líkindum auðþekkjanlegur á parketum landsins í vetur. Hann er rétt rúmlega tveir metrar á hæð og er 26 ára gamall.
Til marks um styrkleika hans fór Haminn beint í atvinnumennsku í Ísrael eftir háskólanám sitt í Bandaríkjunum en Ísraelska deildin þykir með þeim sterkari utan bandaríkjanna. Þar spilaði hann með tveimur liðum áður en hann flutti sig um set og spilaði í Ástralíu. Hérna fyrir neðan má sjá nokkur tilþrif frá kauða.





