spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaSkallagrímur teflir fram nýjum leikmanni í kvöld

Skallagrímur teflir fram nýjum leikmanni í kvöld

Skallagrímur hefur samið við Magnús Engil Valgeirsson fyrir yfirstandandi tímabil í fyrstu deild karla.

Magnús er tvítugur framherji sem kemur til Skallagríms frá Grindavík í Subway deildinni. Hann hefur skrifað undir venslasamning sem þýðir að hann mun spila með ungmennaflokki Grindavíkur en með meistaraflokki karla í Skallagrím.

Komin er heimild fyrir Magnús og mun hann því vera með liði Skallagríms í kvöld er þeir taka á móti liði Þórs Akureyri.

Fréttir
- Auglýsing -