Skallagrímur vann torsóttan sigur á Njarðvík í Borgarnesi en leikurinn var í næst síðustu umferð Dominos deildar kvenna.
Njarðvík leikur eins og flestir vita án erlends leikmanns eftir að Carmen Tyson-Thomas var látin fara frá félaginu fyrir rúmmri viku. Hjá Skallagrím var sama uppá teningnum þar sem Tavelyn Tillman var meidd en Kristrún Sigurjónsdóttir var með í kvöld eftir að hafa misst af síðasta leik.
Njarðvíkingar voru akveðnari og sterkari í byrjun leiks og komust í 9-4 forystu strax í byrjun leiks. Þær leiddu svo eftir fyrsta leikhluta 17-15.
Vörn Skallagríms small svo í nokkur tíma í öðrum leikhluta og komst liðið mest í níu stiga forystu. Staðan 36-30 í hálfleik og ekki að sjá hvort liðið væri í toppbaráttu deildarinnar.
Njarðvík jafnaði leikinn strax í seinni hálfleik og var jafnt á nánast öllum tölum í leikhlutanum. Allt leit út fyrir háspennuleik á lokamínútunum en Skallagrímur náði að stinga aðeins af í loka leikhlutanum og komst í 61-50. Forystuna gáfu þeir ekki eftir á lokasprettinum og tókst Borgnesingum að ná sér í sigur 69-56.
Skallagrímur er með sigrinum endanlega tryggt í þriðja sæti deildarinnar og ljóst að liðið mun mæta Keflavík í undanúrslitum. Njarðvík getur með sigri í síðasta leiknum sótt fimmta sætið af Val. Lokaumferð deildarinnar fer fram næstkomandi miðvikudagskvöld.
Staðan í Dominos deild kvenna eftir 27 umferðir
Skallagrímur-Njar?vík 69-56 (15-17, 21-13, 13-14, 20-12)
Skallagrímur: Kristrún Sigurjónsdóttir 29/5 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 12/4 fráköst, Ragnhei?ur Benónísdóttir 8/4 fráköst, Fanney Lind Thomas 7/6 fráköst, Gunnhildur Lind Hansdóttir 6/4 fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 5/8 fráköst, Sigurbjörg Rós Sigur?ardóttir 2/4 fráköst, Arna Hrönn Ámundaóttir 0, Gunnfrí?ur Ólafsdóttir 0, Gu?rún Ósk Ámundadóttir 0/6 fráköst/10 sto?sendingar,
Njar?vík: Erna Freydís Traustadóttir 15/4 fráköst, Linda Þórdís Bar?dal Róbertsdóttir 12/5 fráköst, María Jónsdóttir 8/5 fráköst, Björk Gunnarsdótir 7/5 fráköst/5 sto?sendingar, Júlia Scheving Steindórsdóttir 7, Soffía Rún Skúladóttir 3/5 sto?sendingar, Karen Dögg Vilhjálmsdóttir 2, Elísabet Sigrí?ur Gu?nadóttir 2, Ása Bö?varsdóttir-Taylor 0, Hulda Bergsteinsdóttir 0, Svala Sigur?adóttir 0.
Mynd / Ómar Örn Ragnarsson




