11:00
{mosimage}
Skallagrímskonur komust í gærkvöldi í 8-liða úrslit í Subwaybikar kvenna eftir 75-65 sigur á Þór Akureyri. Íris Gunnarsdóttir átti góðan dag í liði Skallagríms með 25 stig og 6 fráköst en Rósa Indriðadóttir gerði 18 stig og tók 11 fráköst.
Hjá gestunum frá Akureyri var Freydís Guðjónsdóttir með 16 stig og Marta Jónsdóttir gerði 9 stig og tók 8 fráköst.
Síðari hálfleikur í gær var sendur beint út af útvarpsstöðinni FM Óðal 101,3 þar sem þeir félagar Atli Aðalsteinsson og Jóhann Traustason fóru mikinn. Á einni myndinni hér að neðan eru kapparnir Atli og Jóhann með Finn Jónsson þjálfara Skallagrímskvenna í viðtali.
Sigga Leifs
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}



