spot_img
HomeFréttirSkallagrímsmenn semja við Bell og Pálma

Skallagrímsmenn semja við Bell og Pálma

12:00

{mosimage}

Þjálfari og leikmaður ársins 2007 í Noregi, Webb og Bell

Heimasíða Skallagríms greinir frá því í dag að félagið hafi samið við tvo leikmenn, þá Eric Bell og fyrirliðann Pálma Þór Sævarsson. Bell þessi er ekki ókunnugur Ken Webb þjálfara liðsins en þeir voru saman í Noregi í 2 ár auk þess sem Bell spilaði lengi með Bakken bears og Horsens IC í Danmörku þar sem Webb var að þjálfa.

Eric Bell sem er 33 ára og leikstjórnandi var síðast í Danmörku 2006 með Horsens IC og varð meistari með þeim þegar þeir lögðu Bakken bears í úrslitum undir stjórn Geoff Kotila og Flemming Stie.

Pálmi sem hefur leikið með Skallagrím frá því að elstu menn muna skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.

[email protected]

Mynd: www.nordlys.no

Fréttir
- Auglýsing -