Skagamenn og Selfyssingar mættust á Akranesi í miklivægum leik í 1. deildinni nú fyrir skömmu. Bæði liði höfðu fyrir leikinn verið í ströggli eftir áramótin, Selfyssingar tapað 3 af síðustu 5 og Skagamenn með 5 tapleiki í röð. Bæði lið voru því í þeirri stöðu að vera í fallbaráttu en Skagamenn gátu með sigri tryggt sæti sitt í 1. deildinni að ári.
Leikurinn fór fjörlega af stað og bæði lið ætluðu sér sigur. Að loknum fyrsta leikhluta leiddu heimamenn með 20 stigum gegn 17 og í hálfleik var staðan 42 stig fyrir ÍA gegn 40 stigum FSu.
Seinni hálfleikur var svo í höndum heimamanna sem náðu mest 23ja stiga forystu í leiknum og þegar flautað var til leiksloka höfðu heimamenn betur með 95 stigum gegn 83.
Hjá heimamönnum var Terrence Watson stigahæstur með 29 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar, Áskell Jónsson setti niður 19 stig og gaf 8 stoðsendingar. Birkir Jónsson var með 17 stig, þar af fimm 3ja stiga körfur úr 7 tilraunum auk þess að taka 6 fráköst og Hörður Nikulásson skoraði 15 stig.
Hjá gestunum var Sæmundur Vilmundarson stigahæstur með 16 stig, Steven Crawford kom næstur með 15 stig. Á eftir þeim komu Orri Jónsson með 13 stig og 7 stoðsendingar og Bjarni Bjarnason einnig með 13 stig og 5 stoðsendingar að auki.
Selfyssingar eru því enn í baráttu um að halda sæti sínu í deildinni, 2 stigum fyrir ofan ÍG þegar tvær umferðir eru eftir á meða heimamenn í ÍA tryggðu sæti sitt í 1. deildinni að ári og er þetta í fyrsta sinn síðan 2001 sem liðið nær að halda sæti sínu í deildinni milli ára.
Árið 2001 endaði ÍA í 8. sæti 1. deildra en féllu svo ári síðar. Við tóku tvö tímabil í 2. deild en liðið vann sér sæti í 1. deildinni árið 2004. Liðið féll svo árið 2005 í 2. deild en vann sér svo aftur sæti í 1. deild árið 2009 með því að sigra 2. deildina. Liðið féll þó aftur niður í 2. deild árið 2010 en vann sæti sitt aftur strax ári síðar. Við tók yfirstandandi tímabil og er nú orðið ljóst að ÍA mun spila í 1. deildinni að ári eins og áður sagði.
Það ríkir því mikil gleðið í herbúðum ÍA með þennan árangur. Ekki skemmir fyrir að enn er til staðar veik von um að ná 5. sæti deildarinnar sem gefur þátttökurétt í umspili um laust sæti í úrvalsdeild að ári. Vonin er veik en tölfræðilega er möguleikinn til staðar en er á meðan er. Það eru því spennandi tímar framundan í körfunni á Akranesi það sem eftir lifir þessa tímabils og á því næsta.
Mikið og gott starf hefur verið unnið innan sem utan vallar og vonandi er þetta bara byrjunin af einhverju miklu stærra. Eitt er víst að Skaginn er í sókn.
Texti: HH



