Skagamenn voru í heimsókn í Hveragerði í kvöld í úrslitakeppni 1. deildar karla. Alltof mikil gestrisni var í heimamönnum í byrjun. Gestirnir gengu á lagið og skoruðu hverja körfuna á fætur annari og hittu mjög vel allan leikhlutann. Hamarsmenn spiluðu mjög slaka vörn og voru alltof langt frá mönnunum og enginn var klár í hjálparvörn.
Skagamenn spiluðu 1-2-2 svæðispressu á hálfum velli og gekk illa hjá Hamri að komast í gegnum hana. Þeir létu leiða sig ítrekað út að hliðarlínu við miðlínu þar sem að þeir lentu með tvo varnarmenn á sér og illa gekk að koma boltanum upp völlinn. Staðan eftir 1. leikhluta var 12 – 29 ÍA í vil.
2. leikhluti byrjaði ekkert betur hjá Hamarsmönnum þar sem gekk illa við körfuna hjá gestunum. Það var þó meira jafnræði með liðunum fram að hálfleik en Skagamenn héldu alltaf sínu forskoti. Staðan í hálfleik var 29-50 Skagamönnum í vil.
Hamarsmenn kom sterkari til leiks í seinni hálfleik og náði að minnka muninn jafnt og þétt í byrjun 3. leikhluta. Skagamenn hleyptu þeim þó aldrei of nálægt og náðu að halda muninum í 10 – 15 stigum. Skagamenn misstu aðeins dampinn í vörninni og Hamarsmenn náðu að laga sína stöðu aðeins. Staðan eftir 3. leikhluta var 55-70 Skagamönnum í vil.
Bæði lið komu ákveðin til leiks í loka leikahlutanum. Hamarsmenn náðu þó aldrei að gera alvöru atlögu að sigrinum í kvöld. Þeir virtust andlausir í fyrri hálfleik og pirraðir í seinni hálfleik á meðan að mikil leikgleði og barátta var í Skagamönnum. Það var munurinn á liðunum í kvöld. Skagamenn áttu alltof auðvelt með að skora á lélega vörn heimamanna. Leiknum lauk með sigri gestanna frá Akranesi 77 – 93. Hamarsmenn verða að girða sig í brók og spila almennilega vörn í leik tvö sem fram fer á Akranesi á sunnudaginn ef þeir ætla sér eitthvað lengra að þessu sinni.
Atkvæðamestir hjá Hamri voru: Louis Kirkman með 19 stig og 9 fráköst. Hann verður samt að fara að sjá völlinn betur. Keyrir inn í vörnina og fær 2-3 menn í sig og reynir lélegt skot í staðinn fyrir að finna opnu mennina. Lárus Jónsson með 16 stig. Calvin Wooten með 13 stig og 8 fráköst. Ragnar Nathanelsson 10 stig og 9 fráköst. Halldór Jónsson með 7 stig. Bjarni Lárusson með 6 stig. Björgvin Jóhanesson með 4 stig. Svavar Pálsson með 2 stig og 9 fráköst en var í miklum villu vandræðum.
Atkvæðamestir hjá ÍA voru : Terrence Watson með 25 stig og 16 fráköst. Áskell Jónsson sem var frábær í þessum leik á báðum endum vallarins með 22 stig og 6 fráköst. Hörður Nikulásson með 15 og 4 fráköst. Lorenzo McClelland með 13 stig. Sigurður Rúnar Sigurðsson með 9 stig. Gamla brýnið Dagur Þórisson var fínn í kvöld með 6 stig og spilaði fína vörn. Trausti Freyr Jónsson með 2 stig og 5 stoðsendingar. Ómar Helgason með 1 stig.
Umfjöllun/ Hákon Hjartarson
Mynd/ Úr safni Kolbrún Ingvarsdóttir – Terrence Watson var stigahæstur hjá ÍA í kvöld.




