ÍA hefur fengið mikinn liðsstyrk fyrir komandi tímabil þar sem Þórarinn Gunnar Óskarsson hefur skrifað undir samning við félagið.
Þórarinn söðlar um og mætir á Akranes frá Fylki, en hann á að baki öflugt tímabil í 1. deildinni þar sem hann skilaði tæpum 17 stigum og 10 fráköstum að meðaltali í leik. Frammistaða hans hjá Árbæjarfélaginu fór ekki fram hjá neinum, en hann var valinn besti leikmaður Fylkis þrjú ár í röð; árin 2023, 2024 og 2025.
Um er að ræða stóran og kraftmikinn leikmann sem á eftir að styrkja teiginn verulega hjá Skagamönnum, en búist er við því að hann og leikmaðurinn Sudzum muni mynda afar öflugt tvíeyki í gulu og svörtu treyjunni á næsta keppnistímabili.




