Það er gaman að kíkja á sigurinn í Slóvakíu með tölfræðiaugunum. Sigurinn í gær er aðeins 7. sigurinn á útivelli í EM leik en liðið hefur leikið 37 sinnum á útivelli. Fyrsti útisigurinn kom í Sviss árið 1981.
Fyrirkomulag Evrópukeppninnar hefur verið margskonar í gengum tíðina, lengi framan af var leikið í riðlum sem voru leiknir með fjölliðamótsfyrirkomulagi. Nokkrar þjóðir mættu á einn stað og léku riðil. 1997 var byrjað að leika heima og heiman og seinna var því svo skipt í A og B keppni en nú leika allar þjóir í sömu keppninni.
Íslenska karlalandsliðið hefur leikið 116 Evrópuleiki, 37 hafa farið fram á Íslandi og 79 á erlendri grundu, þó má telja 45 þeirra sem leiki á hlutlausum velli.
Ísland hefur sigrað í 40 af þessum leikjum sem gerir 34,5% sigurhlutfall.
Af þeim leikjum sem teljast útileikir (ekki á hlutlausum velli) hefur Ísland unnið 7 og tapað 27. Sigurleikirnir eru eftirfarandi:
15. apríl 1981 Sviss – Ísland í Sion 83-90
23. júní 1993 Austurríki – Ísland í Vín 73-95
27. janúar 2001 Portúgal – Ísland í Oporto 81-84
10. september 2005 Rúmenía – Ísland í Búkarest 72-80
1. september 2007 Lúxemborg – Ísland 73-89
19. ágúst 2009 Danmörk – Ísland í Álaborg 54-66
18. ágúst 2012 Slóvakía – Ísland í Levice 75-81





