spot_img
HomeFréttirSjötti heimasigur Tindastóls í röð

Sjötti heimasigur Tindastóls í röð

Tindastóll og ÍR mættust í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld í hörkuleik sem lengstum var jafn. Stólarnir náðu tvívegis 11 stiga forskoti, fyrst í upphafi leiks en síðan alveg í lok hans. Þess á milli munaði 2-5 stigum á liðunum og níu sinnum var jafnt. Það fór svo að lokum að Tindastóll hafði níu stiga sigur og geta sérstaklega þakkað það góðri vörn síðustu þrjár mínútur leiksins. Lokatölur 78 – 69.
 
Fyrir heimamenn byrjaði hefðbundið byrjunarlið; Rikki, Kiki, Hayward, Helgi Rafn og Sean. Hjá ÍR var gamli maðurinn Eiríkur Önundarson kominn í byrjunarliðið ásamt Sovic, Hjalta, Bartolotta og Biedler. Fyrir leik var Svavari Atla Birgissyni veitt viðurkenning, en hann lék á dögunum sinn 200. leik fyrir Tindastól.

Stólarnir byrjuðu leikinn mjög vel eins og svo stundum áður, en enginn eins vel og Kitanovic. Hann skoraði níu af fyrstu 11 stigum heimamanna og voru hann og Sean eiginlega einráðir í stigaskori fyrir Tindastól í fyrsta leikhluta. Heimamenn voru komnir með þægilegt forskot um miðjan leikhlutann og tók Gunnar Sverrisson þjálfari ÍR þá leikhlé í stöðunni 13 – 4. Leikur gestanna lagaðist þó lítið fyrst á eftir og þegar rúmar tvær mínútur lifðu af fjórðungnum var staðan 20 – 9. Þá hrökk Bartolotta í gang fyrir ÍR og setti niður tvo þrista, ásamt körfu frá Hjalta. Eftir fyrsta leikhluta munaði því aðeins þremur stigum, 20 – 17.

Eitthvað voru heimamenn slegnir út af laginu því ÍRingar voru einráðir í upphafi annars fjórðungs. Þeir skoruðu 10 – 2 á Tindastól og höfðu snúið leiknum sér í hag í stöðunni 22 – 27.
Stólarnir náðu þá að laga sóknarleik sinn og söxuðu muninn niður fram að hálfleik. Tvær þriggja stiga körfur frá Sean og Kiki tryggðu að heimamenn fóru inn í hléið með tveggja stiga forskot. Staðan í hálfleik 35 – 33.  Atkvæðamestir Tindastóls voru Kiki með 14 stig og Sean með 10. Hjá ÍR dreifðist stigaskorið betur, Bartolotta með 8 og Hjalti 6 stig voru þeirra stigahæstu menn í fyrri hálfleik.

Mikil barátta einkenndi þriðja leikhluta og liðin skiptust á að leiða. ÍR var að hitta nokkuð vel fyrir utan þriggja stiga línuna í leikhlutanum og settu niður fjóra þrista. Kelly Biedler sem hafði látið lítið fyrir sér fara í fyrri hálfleik vaknaði til lífsins og skoraði 10 stig. Hjá Stólunum gekk sóknarleikurinn ekki vel á köflum, sérstaklega reyndi Hayward mikið, en mest án árangurs. ÍR seig framúr undir lok þriðja fjórðungs og leiddu með þremur, staðan 52 – 55.

Jafnræði var með liðunum fyrstu sex mínútur síðasta leikhlutans. Nokkur harka hafði færst í leikinn og voru bæði lið komin með skotrétt eftir rúmar fimm mínútur. Í stöðunni 61 – 62 fór vörnin að virka vel hjá Stólunum og þeir lokuðu á gestina og stálu nokkrum boltum. Í kjölfarið brutu ÍRingar af sér og fór Hayward þrisvar á vítalínuna í röð og setti niður 5 af sex vítum. Staðan 66 – 62. Þá var dæmd óíþróttamannsleg villa á Helga Freyr Tindastólsmann og ÍR skoraði þrjú stig næstu stig og enn tæpar þrjár mínútur eftir. En nú skelltu heimamenn í lás í vörninni og skoruðu þrjár körfur í röð án svars frá ÍR. Bartolotta hitti þá úr tveimur vítum en það voru einu stig ÍR síðustu þrjá mínúturnar fyrir utan síðustu körfu leiksins. ÍR sendi Stólana í vítalínuna en þar voru heimamenn tiltölulega öruggir og innsigluðu sigur, 78 – 69. Eftir erfiða fæðingu var gríðarlega mikilvægur sigur í höfn og geta Tindastólsmenn þakkað það frábærum varnarleik í fjórða leikhluta. Þeir náðu að loka vel á þá Sovic, Bartolotta og Biedler og þá steig Hayward Fain upp á hárréttum tíma fyrir Tindastól eftir dapran leik framan af. Hjá ÍR var Kelly Biedler stigahæstur með 14 stig og 9 fráköst, en var ekki að hitta vel úr stuttu skotunum. Hjalti, Eiríkur og Sovic skiluðu líka góðum leik. Hjá Tindastóli var Hayward stigahæstur með 23 stig, 10 fráköst og 4 varin skot. Sean kom næstur með 20 stig og síðan Kitanovic með 18. Þá tók Helgi Rafn 16 fráköst og var sérstaklega öflugur í sóknarfráköstunum og var að auki með 100% þriggjastiga skota nýtingu.

Dómarar leiksins voru þeir Kristinn Óskarsson og Jón Guðmundsson og stóðu vaktina ágætlega.

Áhorfendur: 280.

Stigaskor Tindastóls: Hayward 23, Sean 20, Kiki 18, Rikki 8, Helgi Rafn 7 og Helgi Freyr 2.

ÍR: Biedler 14, Bartolotta 13, Sovic 11, Hjalti 10, Eiríkur 10, Níels 7 og Sveinbjörn 4.

Texti: JS

 
Mynd: Björn Ingi Björnsson – myndasafn, myndasafn frá Hjalta Árnasyni og svo myndasafn frá Arnari Snæ Gunnarssyni
Fréttir
- Auglýsing -