spot_img
HomeFréttirSjö semja við Valsmenn

Sjö semja við Valsmenn

Í gær skrifuðu sjö leikmenn undir tveggja ára samning við meistaraflokk karla hjá Val. Fimm þessara sjö eru nýjir leikmenn og eru það Atli Rafn Hreinsson 23 ára framherji / bakvörður frá Þór Akureyri spilaði með unglingalandsiðum Íslands, Benedikt Smári Skúlason 25 ára  framherji sem er að koma úr námi frá Danmörku, Guðni Páll Guðnason 20 ára bakvörður frá KFÍ, Jens Guðmundsson 27 ára skotbakvörður spilaði og þjálfaði Víking Ólafsvík og Þorgrímur Guðni Björnsson 21 árs framherji komin aftur heim frá Breiðablik en hann hefur spilað með unglingalandsliðum Íslands. www.valur.is greinir frá.
 
Benedikt Blöndal 19 ára bakvörður og Hlynur Logi Víkingsson 16 ára framherji sem spiluðu báðir með mfl. Vals í fyrra, skrifuðu einnig undir tveggja ára samning.
 
www.valur.is

 
Mynd/ Torfi Magnússon – Benedikt Blöndal framlengdi í gær hjá Valsmönnum. 
Fréttir
- Auglýsing -