Út er kominn nýjasti þátturinn af Run and Gun með fyrrum þjálfaranum og fjölmiðlamógulnum Máté Dalmay.
Með Máté í þessum síðasta þætti eru sá raunverulegi Tómas Steindórsson og stuðningsmaður Vals Steinar Aronsson. Upptökuna er hægt að nálgast hér á Spotify og þá er hægt að horfa á þáttinn á YouTube hér fyrir neðan, en í honum er meðal annars farið yfir sviðið í Bónus deild karla.
Líkt og Run and Gun hefur gert í vetur setja þeir fram í þættinum nokkrar misheitar skoðanir varðandi lið Bónus og fyrstu deildar karla. Efst á blaði hjá þeim er að KR hafi með nýjum leikmönnum og bikartitlinum stimplað sig inn í kapphlaupið um Íslandsmeistaratitilinn. Þá er er einnig til umræðu gott gengi Grindavíkur í síðustu leikjum og hversu leiðinlegt er að horfa á Keflavík spila án Remy Martin.





