spot_img
HomeFréttirSjö í röð hjá KR í DHL: Kvittuðu fyrir tapið í Blómabænum

Sjö í röð hjá KR í DHL: Kvittuðu fyrir tapið í Blómabænum

 
Baráttan á toppi Iceland Express deildarinnar er orðin ansi forvitnileg eftir leiki kvöldsins. KR kvittaði fyrir tapið í Hveragerði fyrr á leiktíðinni með 97-87 sigri á Hamri í DHL-Höllinni í kvöld. Nú eru Grindavík og Snæfell efst og jöfn með 22 stig en KR og Keflavík fylgja fast á hæla þeirra með 18 stig. Pavel Ermolinskij fór mikinn í liði KR í kvöld með magnaða þrennu, 17 stig, 17 fráköst og 16 stoðsendingar sem er met þessa leiktíðina. Hvergerðingar gerðu sér erfitt fyrir á lokasprettinum því í stöðunni 76-76 fékk Svavar Páll Pálsson að fjúka af velli með fimm villur og sú fimmta kom vegna mótmæla, dýrt spaug þar á ferðinni og KR splæsti í 7 stiga sókn fyrir vikið og þá var björninn unninn.
Vesturbæingar mættu vopnaðir pressuvörn frá fyrstu andartökum leiksins og gestirnir úr Hveragerði röðuðu sér upp í 2-3 svæðisvörn. Varnaryfirlýsingar í upphafi leiks en þær fuku fyrir lítið því leikmenn beggja liða virtust hafa umtalsvert meiri áhuga á því að spila sókn fyrstu 10 mínútur leiksins.
 
Bæði lið voru hátt stemmd framan af og Hvergerðingar réðu betur við það og komust í 7-16 með 12-0 áhlaupi. KR svaraði að bragði með 11-0 áhlaupi og komust í 18-16 eftir þriggja stiga körfu frá Brynjari Þór Björnssyni.
 
Ólafur Ægisson kom svellkaldur af KR bekknum í fyrsta leikhluta og jafnaði metin í 25-25 með þriggja stiga körfu og Pavel Ermolinskij náði svo þegar 5 sekúndur voru eftir að jafna metin í 27-27 með stökkskoti í teignum og því líflegur upphafsleikhluti að baki þar sem Kjartan Kárason var kominn með 8 stig í liði Hamars en kappinn sá var í byrjunarliði gestanna í kvöld á meðan sunnlenska nautið Svavar Páll Pálsson kom inn af tréverkinu. Þá var Brynjar Þór með 9 stig hjá KR eftir upphafshlutann.
 
Framan af öðrum leikhluta skiptust liðin á að dúndra niður þristum en brátt skildu KR-ingar sig frá gestum sínum. Mikið var skorað og varnaryfirlýsingarnar í upphafi leiks orðnar nokkuð skoplegar þegar hér var komið við sögu í leiknum.
 
Marcus Walker var iðinn við kolann í kvöld á báðum endum vallarins en Hamarsmenn bitu frá sér, minnkuðu muninn í 51-46 þegar um mínúta var til hálfleiks en þá hljóp upp ungæðishátturinn í miðherja gestanna, Ragnar Natahanaelsson hreinlega varð að tjá sig við dómara leiksins og uppskar tæknivíti fyrir vikið. KR bauð þá upp á 6 stiga sókn þar sem Marcus Walker setti þrist þegar 48 sekúndur voru til leiksloka og því leiddu heimamenn 59-48 í leikhléi og samskiptum Hamars og dómara leiksins hvergi nærri lokið, þau áttu eftir að hafa enn afdrifaríkari áhrif síðar meir.
 
Marcus var með 13 stig og Brynjar Þór 12 hjá KR í hálfleik en hjá Hamri var Andre Dabney með 10 stig og Darri Hilmarsson 9.
 
Kjartan Kárason og Svavar Páll kveiktu líf að nýju hjá Hamri, saman settu þeir þrjá þrista á skömmum tíma og náðu gestirnir að minnka muninn í 65-60. Fannar Ólafsson átti einnig líflegar rispur í kvöld og reyndist stóru mönnum Hamars erfiður ljár í þúfu.
 
KR tók 9-2 rispu og breyttu stöðunni í 74-62 og Pavel Ermolinskij þurfti ekki nema um 25 mínútur til að landa þrennunni. Gestirnir ætluðu sér þó ekki að missa KR frá sér, Andre Dabney stal boltanum og brunaði upp, Skarphéðinn Ingason braut á honum og uppskar óíþróttamannslega villu fyrir vikið og Hamar náði að minnka muninn í 74-70 fyrir fjórða leikhluta og unni því þann þrijða 15-22.
 
Gestirnir byrjuðu glimrandi vel í fjórða leikhluta, náðu að komast yfir 74-76 eftir gegnumbrot frá Dabney, KR jafnaði í næstu sókn, staðan 76-76 þegar reiðarslagið kemur. Svavar Páll Pálsson fær dæmda á sig sína fjórðu villu þegar rétt rúmar sjö mínútur eru til leiksloka. Svavar mótmælti, fékk aðvörun frá dómara leiksins en lét sér ekki segjast, hélt áfram að ræða við dómarann og fékk fyrir vikið tæknivíti. Fimmta villan í hús, KR þakkaði fyrir sig og skora heil 7 stig í sókninni sem fylgdi, bæði af vítalínunni og úr þriggja stiga skoti. Björninn unninn.
 
Hvergerðingar voru ekki líklegir til afreka eftir brotthvarf Svavars, KR hélt út og landaði að lokum 97-87 sigri í leiknum. Með 10 stiga mun hrifsuðu Vesturbæingar innbyrðismun liðanna einnig í fang sitt.
 
Punktar:
-Svavar Páll byrjaði á bekknum hjá Hamri, Kjartan Kárason var í byrjunarliðinu.
-KR hefur unnið alla heimaleiki sína í deildinni, 7 talsins.
-Fannar Ólafsson átti góðar rispur í kvöld fyrir KR en bestu menn liðsins voru Marcus og Pavel.
-Hamar hefur nú tapað fimm deildarleikjum í röð.
-Fimm leikmenn KR gerðu 15 stig eða meira í kvöld.
-Sex leikmenn Hamars gerðu 11 stig eða meira í kvöld
-Hörður Axel Vilhjálmsson átti stoðsendingametið fyrir leiki kvöldsins, 15 voru það en Pavel gaf 16 í kvöld og trónir því á toppi þess tölfræðihluta í augnablikinu.
-Næsti deildarleikur KR er gegn Haukum
-Næsti deildarleikur Hamars er gegn Fjölni
 
Heildarskor:
 
KR: Marcus Walker 19, Pavel Ermolinskij 17/17 fráköst/16 stoðsendingar, Brynjar Þór Björnsson 16, Fannar Ólafsson 16/5 fráköst, Finnur Atli Magnússon 15/4 fráköst, Hreggviður Magnússon 9, Ólafur Már Ægisson 5, Jón Orri Kristjánsson 0, Skarphéðinn Freyr Ingason 0, Ágúst Angantýsson 0, Matthías Orri Sigurðarson 0, Páll Fannar Helgason 0.
 
Hamar: Svavar Páll Pálsson 14/4 fráköst, Kjartan Kárason 14, Andre Dabney 13/5 stoðsendingar, Darri Hilmarsson 13/6 fráköst, Nerijus Taraskus 13, Ellert Arnarson 11/5 stoðsendingar, Snorri Þorvaldsson 5, Ragnar Á. Nathanaelsson 4/7 fráköst, Bjarni Rúnar Lárusson 0, Bjartmar Halldórsson 0, Emil F. Þorvaldsson 0, Stefán Halldórsson 0.
 
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Jón Þór Eyþórsson
 
Ljósmynd/ Tomasz Kolodziejski – [email protected] – Fannar Ólafsson lét vel fyrir sér finna í kvöld, Fannar gerði 16 stig og tók 5 fráköst í leiknum.
 
Umfjöllun: Jón Björn Ólafsson – [email protected]  
Fréttir
- Auglýsing -