spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaSjáðu rosalega troðslu Leó

Sjáðu rosalega troðslu Leó

ÍR lagði Þór Akureyri í Skógarseli í gærkvöldi í fyrsta leik undanúrslita fyrstu deildar karla, 97-80. ÍR því komnir með 1-0 forystu í einvíginu, en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitin.

Tölfræði leiks

Ungstirni ÍR Friðrik Leó Curtis átti frábæran fyrsta leik undanúrslita fyrir sína menn, skilaði 22 stigum, 9 fráköstum, 3 stoðsendingum, 2 stolnum boltum og 3 vörðum skotum á rúmum 32 mínútum spiluðum. Þá átti hann einnig troðslu leiksins, en eins og má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan treður hann boltanum af áfergju í traffík um miðjan þriðja leikhluta leiksins.

Fréttir
- Auglýsing -