HomeFréttirSjáðu hvernig ný þjóðarhöll mun líta út

Sjáðu hvernig ný þjóðarhöll mun líta út

Samningurinn um hönnun og byggingu nýrrar og glæsilegrar Þjóðarhallar í Laugardal hefur verið settur í hendur Íslenskra aðalverktaka hf..

Það var Þjóðarhöll ehf. sem valdi tilboð fyrirtækisins fyrir hönd ríkissjóðs og Reykjavíkurborgar. Útboðsferlið hófst árið 2024 þegar lýst var eftir samstarfshópum til að leiða verkefnið frá teikniborðinu til fullbúins mannvirkis, en í lokaslagnum stóð valið á milli tilboða frá Ístaki hf. og Íslenskum aðalverktökum hf.. Að baki sigurtilboðinu stendur öflugt hönnunar- og tækniteymi, þar á meðal ASK arkitektar, LPO arkitektar og verkfræðistofan COWI, en 13 manna matsnefnd fór yfir 32 ítarlega matsliði áður en niðurstaða fékkst.

Heildarkostnaður framkvæmdarinnar samkvæmt tilboðinu nemur 16,8 milljörðum króna með virðisaukaskatti, en stefnt er að frekari hagræðingu við endanlega hönnun án þess að afsláttur verði gefinn á gæðakröfum. Þetta nýja fjölnota hús á að gerbreyta allri aðstöðu fyrir íslenskt landsliðsfólk í fjölmörgum greinum, auk þess að stórbæta umhverfið fyrir íþróttaiðkun barna og ungmenna. Við valið var rík áherslu lögð á að byggingin uppfylli strangar kröfur um útlit, notagildi, sjálfbærni, rekstrarhagkvæmni og gott aðgengi.

Nýja höllin mun rísa rétt sunnan við núverandi Laugardalshöll og tengjast vel öðrum íþróttamannvirkjum á svæðinu, auk þess sem hún mun liggja vel við göngu- og hjólaleiðum og fyrirhugaðri Borgarlínu. Húsið á að vera opinn samkomustaður fyrir alla þjóðina þar sem blandað verður saman lýðheilsu, íþróttum og veitingarekstri. Fjölmargir munu nýta aðstöðuna, allt frá skólum og háskólum í nágrenninu til sérsambanda, íþróttafélaga og ólíkra viðburðahaldara, en ítarlegri upplýsingar má nálgast á vef Þjóðarhallar ehf.

Fréttir
- Auglýsing -