spot_img
HomeFréttirSirValiant Brown sendur heim frá Hamri

SirValiant Brown sendur heim frá Hamri

15:51
{mosimage}

Hamarsmenn í 1. deild hafa ákveðið að senda heim SirValiant Brown sem kom til liðsins fyrir þessa leiktíð en þetta staðfesti Ágúst Sigurður Björgvinsson þjálfari Hamars við Karfan.is í dag.

,,Brown er farinn og mun ekki spila meira með okkur. Aðalástæðan er skortur á peningum til að borga honum laun en einnig voru menn ekki alveg nógu sáttir við kappann utan vallar,“ sagði Ágúst en næsti leikur Hamars er á föstudag þegar KFÍ kemur í heimsókn.

Hvað verður með framhaldið sagði Ágúst það óráðið hvort annar erlendur leikmaður kæmi til liðs við Hamar.

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -