HomeFréttirSigurjón Lárusson verðlaunaður fyrir 200 leiki undir merkjum Stjörnunnar

Sigurjón Lárusson verðlaunaður fyrir 200 leiki undir merkjum Stjörnunnar

Sigurjón Lárusson fékk viðurkenningu frá Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar fyrir að spila sinn 200. leik í meistaraflokki fyrir liðið.  Sigurjón hefur síðastliðin ár spilað með ÍBV en kom aftur til liðsins fyrir þetta tímabil.  Þar áður fylgdi hann liðinu í gegnum súrt og sætt og var meðal annars í liðinu þegar það tryggði sér síðast sæti í úrvalsdeild.  Sigurjón þekkir því vel til í Stjörnunni og á stóran þátt í þeirri velgengni sem liðið býr að í dag. 
"Vá, þetta er búinn að vera svo langur tími.  Ég er náttúrulega svo nýkominn aftur í bæinn, var að spila með ÍBV síðastliðin þrjú ár.   Ég vissi ekki af þessu fyrir leikinn, mér var bara tilkynnt þetta núna áðan.  Skemmtilegt, kom skemmtilega á óvart.  Maður er náttúrulega kominn á þrítugsaldurinn"
 

Hvað myndiru segja að standi uppúr á þessum árum sem þú hefur spilað með Stjörnunni?

"Já ætli það hafi ekki verið þegar við komumst síðast upp í úrvalsdeildina, það var hápunkturinn.  Það var eiginlega síðasta tímabilið sem ég tók með Stjörnunni.  Svo tók ég þarna nokkra leiki í úrvalsdeildinni áður en ég flutti til eyja.  Þetta er bara búið að vera yndislegt.  Gaman að fylgja klúbbnum frá byrjun og gaman að sjá hvar við erum komnir í dag því þegar ég byrjaði hérna þá vorum við að stofna klúbbinn.  Bjössi Leó setti hann á fætur .  Það er gaman að hafa fylgt klúbbnum alla leið og sjá hvar hann er staddur í dag".  

 

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -