Keflavík lagði Grindavík nokkuð örugglega í Smáranum í kvöld í 8. umferð Subway deildar karla, 82-111. Eftir leikinn er Keflavík í 2.-8. sæti deildarinnar með fimm sigra og þrjú töp á meðan að Grindavík er sæti neðar í 9. sætinu með fjóra sigra og fjögur töp.
Víkurfréttir spjölluðu við Sigurð Pétursson leikmann Keflavíkur eftir leik í Smáranum. Sigurður var að öðrum ólastaður besti leikmaður vallarins í kvöld með 26 stig úr 13 skotum af vellinum, 4 fráköst og 3 stoðsendingar á rúmum 30 mínútum spiluðum.
Eftirfarandi viðtal er birt af rás Víkurfrétta