Sigurður Þorsteinsson var með 11 stig þegar Doxa Pefkon unnu sinn annan leik í röð í grísku A2 deildinni nú um helgina en liðið mætti Pagrati í Aþenu.
Doxa náði snemma leiks góðum tökum á leiknum og leiddi með 10 stigum strax í fyrsta leikhluta. Pagrati náði að minnka muninn í öðrum leihluta og var staðan 44-49 fyrir Doxa í hálfleik. Seinni hálfleikur var mun jafnari og varð munurinn minnstur á liðunum 62-64 en eftir það kom góður kafli hjá Doxa og sigruðu þeir að lokum 72-79.
Doxa Pefkon er nú komið upp í 7. sæti eftir að hafa tapað tveimur fyrstu leikjunum sínum í deildinni.




