Sigurður Ágúst Þorvaldsson hefur átt við kálfameiðsli síðan í leiknum gegn Njarðvík þann 18. október síðastliðinn og rétt getað jafnað sig á milli leikja. Nú er svo komið að sjúkraþjálfari stoppaði Sigurð af og mun hann þurfa að hvíla fram yfir áramót til að ná að jafna sig.
Það er því ljóst að Snæfell leika án Sigurðar gegn Stjörnunni og Þór Þorlákshöfn. Óli Ragnar er einnig meiddur en hann meiddist í leiknum gegn ÍR þar sem hann meiddist á rist. Það er alveg óvíst hversu lengi Óli Ragnar verður frá.
Ingi Þór Steinþórsson þjálfari Snæfells staðfesti þetta við Karfan.is nú í kvöld.



