spot_img
HomeFréttirSigur í fyrsta leik nýja ársins hjá TCU

Sigur í fyrsta leik nýja ársins hjá TCU

 
Helena Sverrisdóttir og TCU byrja árið vel en í nótt mættust TCU og Oklahoma skólinn á heimavelli TCU þar sem lokatölur voru 76-69 TCU í vil. Helena var næststigahæst í liði TCU með 24 stig en hún tók einnig 5 fráköst, gaf 1 stoðsendingu og var með 1 varið skot. Þá setti Helena niður 12 af 13 vítaskotum sínum í leiknum. 
Emily Carter var stigahæst hjá TCU með 26 stig en saman skoruðu hún og Helena 50 af 76 stigum TCU í leiknum!
 
Sigurinn gegn Oklahoma var sá þriðji í sögu TCU skólans. Næsti leikur TCU er í Kaliforníu þann 5. janúar n.k. gegn San Diego State.
 
Fréttir
- Auglýsing -