HomeFréttirSigur hjá Granada en engin úrslitakeppni

Sigur hjá Granada en engin úrslitakeppni

 
CB Granada, lið Jóns Arnórs Stefánssonar í spænsku úrvalsdeildinni, missir af úrslitakeppninni þetta árið þrátt fyrir sigur um helgina. Jón Arnór skoraði 9 stig fyrir Granada í 6 stiga útsigri liðsins gegn CB Murcia.
Jón lék í 17 mínútur í leiknum, gerði 9 stig, tók 5 fráköst og gaf 1 stoðsendingu. CB Granada hafnaði í 10. sæti deildarinnar þar sem liðið vann 15 af 34 leikjum sínum í deildinni.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -