spot_img
HomeFréttirSigrún Björg til Chattanooga Mocs

Sigrún Björg til Chattanooga Mocs

Bakvörðurinn Sigrún Björg Ólafsdóttir hefur ákveðið að halda vestur um haf og ganga til liðs við Chattanooga Mocs fyrir næsta tímabil. Mocs leika í SoCon hluta efstu deildar bandaríska háskólaboltans.

Sigrún lék upp alla yngri flokka og með meistaraflokki Hauka. Á síðasta tímabili skilaði hún 7 stigum, 3 fráköstum og 3 stoðsendingum að meðaltali í leik. Þá hefur hún einnig leikið með öllum yngri landsliðum og A landsliði Íslands.

Fréttir
- Auglýsing -