spot_img
HomeFréttirSigrún Björg og Chattanooga Mocs unnu sinn fjórða leik í röð

Sigrún Björg og Chattanooga Mocs unnu sinn fjórða leik í röð

Sigrún Björg Ólafsdóttir og Chattanooga Mocs unnu í kvöld East Tennessee State Bucs í háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Mocs það sem af er tímabili unnið sex leiki, en tapað fjórum, en sigur þeirra í kvöld var sá fjórði í röð.

Sigrún Björg var í byrjunarliði Mocs í kvöld og lék 12 mínútur. Á þeim skilaði hún stigi og tveimur stoðsendingum.Næst leika Mocs gegn Furman Lady Paladins þann 16. janúar.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -