Íslenska A-landsliðskonan Sigrún Sjöfn Ámundadóttir heldur áfram að gera garðinn frægan í Frakklandi. Laugardaginn 29.janúar síðastliðinn mætti lið hennar, OSSG, öflugu liði Franconville í bikarleik á heimavelli en Sigrún tjáði undirritaðri að þessi leikur væri á svipuðum skala og hörðustu nágrannaslagir á Íslandi. Munurinn á liðunum var fyrir leikinn talinn mikill þar sem að OSSG leikur í 2.deildinni í Frakklandi en Franconville er í toppbaráttu í 1.deild. Annað kom þó á daginn.
Það vakti athygli undirritaðrar að lið OSSG fékk að byrja með 7 stig vegna þess að það er einni deild neðar en Franconville. Því hófst leikurinn 7-0 en það skipti engu máli þegar uppi var staðið. Lið OSSG mætti gríðarlega vel til leiks og leikmenn liðsins virtust geta hitt hvar sem var á vellinum. Gestirnir virkuðu ráðvilltir og hissa og ekkert gekk hjá þeim í fyrsta leikhluta og því hafði OSSG góða forystu þegar leikhlutinn var úti. Þjálfari Franconville var hreint ekki sáttur við sitt lið og lét sínar dömur heyra það eftir fyrsta leikhlutann.
Sigrún kom sterk inn af bekknum í öðrum leikhluta og setti tvo fallega þrista. Einnig spilaði hún hörkuvörn ásamt liðsfélögum sínum og því hélt OSSG góðri forystu. Staðan í hálfleik var 52-26 fyrir heimastúlkur.
Það sama var uppi á teningnum í seinni hálfleik og Sigrún hélt áfram að spila vel bæði í vörn og sókn. Franconville tókst þó að bæta aðeins leik sinn í fjórða leikhluta en það var einfaldlega of seint, heimastúlkur héldu haus og lokatölur leiksins voru 74-60.
Sigrún lék í u.þ.b. 25 mínútur í leiknum og stóð sig með mikilli prýði. Hún endaði með 14 stig, þar af þrjá þrista í fimm tilraunum, sjö fráköst og þrjár fiskaðar villur, auk þess að spila hörku vörn. Það verður spennandi að sjá hvað þessi frábæra körfuknattleikskona tekur sér fyrir hendur eftir þetta fína tímabil sem hún hefur átt í Frakklandi.
Álfheiður Sverrisdóttir




