spot_img
HomeFréttirSigmundur og Pétur Hrafn að störfum hjá FIBA Europe

Sigmundur og Pétur Hrafn að störfum hjá FIBA Europe

FIBA Europe dómarinn Sigmundur Már Herbertsson og eftirlitsmaðurinn Pétur Hrafn Sigurðsson voru í gær og í dag í eldlínunni í sitt hvoru Evrópuverkefninu.
 
 
Pétur Hrafn var eftirlitsmaður í gær í Risskov í Danmörku þegar Bakken Bears mættu Kataja Basket frá Joensuu Finnlandi í Eurochallenge keppni karla. 
 
Í kvöld dæmir svo Sigmundur Már Herbertsson leik í Euroleague kvenna á Spáni þegar Rivas Ecopolis mætir lið Nadezhda Orenburg frá Rússlandi. Meðdómarar Sigmundar í leiknum eru frá Makedóníu og Andorra.
 
Hægt er að lesa nánar um þessa leiki og aðra leiki í keppninni á vef FIBA Europe.
 
www.kki.is greinir frá
  
Fréttir
- Auglýsing -