spot_img
HomeFréttirSigmundur dæmir tvo leiki í Euro Cup karla

Sigmundur dæmir tvo leiki í Euro Cup karla

Sigmundur Már Herbertsson er enn á ferð um Evrópu að dæma á vegum FIBA Europe. Nú er hann staddur í Belgíu þar sem hann dæmir tvo leiki.
Í gærkvöldi dæmdi hann leik Mons-Hainaut og Bakken Bears frá Danmörku þar sem heimamenn unnu öruggan sigur.

Í kvöld dæmir hann svo leik Antwerp Giants og CEZ Nymburk, fyrrverandi félags Harðar Axels Vilhjálmssonar. Báðir leikirnir eru í riðlakeppni 32-liða úrslita FIBA Europe Cup.

Meðdómarar Sigmundar í báðum leikjunum eru Regis Barders frá Frakkland og Zafer Yilmaz frá Tyrklandi en eftirlitsmaður er Trevor Pountain frá Englandi.

www.kki.is greinir frá.

Fréttir
- Auglýsing -