spot_img
HomeFréttirSigmundur dæmir í Evrópu

Sigmundur dæmir í Evrópu

12:00

{mosimage}

Sigmundur Már Herbertsson hefur verið útnefndur af FIBA til að dæma tvo leiki sem fram fara á næstunni í evrópukeppnum kara og kvenna. Þann 15. október mun hann dæma í Riga, Lettlandi leik í Euroleague kvenna en það verður viðureign TTT Riga gegn Euroleasing frá Ungverjalandi.

Í þeim leik verða þær Kati Nynas frá Finnlandi og Petra Kremer frá Þýskalandi meðdómarar hans.

Seinni leikurinn er viðureign í Eurocup karla, leikur Eiffel Towers Den Bosch frá Hollandi gegn Körmend frá Ungverjalandi en leikið er í Hertogenbosch í Hollandi.

Sá leikur er seinni leikur þessara liða um að komast í riðlakeppnina í Eurocup.

Meðdómarar Sigmundar verða Gianluca Mattioli frá Ítalíu og Neil Wilkinson frá Englandi.

Við óskum Sigmundi alls hins besta í þessum verkefnum og gleðjumst yfir því að íslenski dómarar skuli fá svona krefjandi verkefni frá FIBA.

www.kki.is

Mynd: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -