Tveir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöldi. Bæði toppliðin Sundsvall og LF Basket léku á heimavelli og nældu sér í sigra, því er staðan óbreytt á toppnum. LF og Sundsvall hafa bæði 28 stig en LF hefur betur innbyrðis þó Sundsvall eigi leik til góða.
Það voru ecoÖrebro sem komu í heimsókn til Jakobs og Hlyns í Sundsvall í gær þar sem lokatölur reyndust 96-82 fyrir Sundsvall. Tíundi sigurleikur Sundsvall staðreynd! Hlynur og Jakob hafa oft verið fyrirferðameiri þetta tímabilið en skiluðu þó ágætlega í leiknum, Hlynur gerði 9 stig, tók 10 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Jakob gerði 5 stig og gaf 7 stoðsendingar.




