Sigurður Þorsteinsson fer vel af stað með liði sínu Doxa Pefkon í Grikklandi en Sigurður smellti niður 32 stigum í 91-90 sigri gegn Livadia í fyrstu umferð grísku bikarkeppninnar í gær.
Í fyrstu og annarri umferð sitja sex lið hjá en þar á meðal eru risar á borð við Aris, AEK, Olympiacos og Panathinaikos. Tvö lið úr annarri umferð halda áfram inn í þriðju umferð.
Önnur umferð er spiluð á þremur dögum með útsláttarfyrirkomulagi eins og gengur og gerist og innan umferðarinnar er 16 liða úrslit, 8 liða úrslit og undanúrslit. Sigurvegarar úr undanúrslitum halda svo áfram í þriðju umferð.
Sigurður og félagar fá ekki mikla hvíld en 16 liða úrslit annarrar umferðar fara fram á morgun, föstudaginn 25.9, þar sem liðið mætir KAO Dramas.




