Fjórir leikir eru í Dominos deild karla í kvöld. Mikil spenna er í deildinni þar sem að aðeins 2 stig skilja að liðin í 4. – 8. sæti deildarinnar að þegar aðeins 2 umferðir eru eftir. Spennan við toppinn einnig nokkur, en bæði Tindastóll og Stjarnan þurfa mjög væntanlega að vinna sína leiki í kvöld, ætli þau sér að halda í við KR. KR á einnig leik í kvöld gegn Snæfell í Stykkishólmi, en það ku vera síðasti leikurinn sem spilaður er þar í Dominos deild karla í bili. Risaleikur er í Borgarnesi þar sem að heimamenn í Skallagrím taka á móti Þór og með sigri að klifra upp úr því fallsætinu sem þeir hafa verið í síðan í síðustu umferð.
Í 1. deild kvenna taka Fjölniskonur aftur á móti Þór frá Akureyri. Annar leikur þessara liða á jafn mörgum dögum, en leikinn í gær sigruðu gestirnir að norðan 79-56 og tryggðu sér þar með sæti í úrslitaeinvígi fyrstu deildarinnar um þáttöku í Dominos deildinni á komandi tímabili.
Í 1. deild karla er svo leikur Vals og Hattar að Hlíðarenda. Höttur tryggði sér á föstudagskvöldið efsta sætið í 1. deildinni þetta árið og þar með beina leið upp úr henni á meðan að Valur er í 3. sæti deildarinnar, í harðri baráttu um heimavallarrétt í úrslitakeppni fyrstu deildarinnar.
Leikir dagsins
Dominos deild karla:
Tindastóll Grindavík – kl. 19:15 í beinni útsendingu Tindastóll Tv
Stjarnan Haukar – kl. 19:15
Snæfell KR – kl. 19:15
Skallagrímur Þór – kl. 19:15 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
1. deild kvenna:
Fjölnir Þór Akureyri – kl. 14:00
1. deild karla:
Valur Höttur – kl. 14:00




